Grindavík sló KA út

Guðmann Þórisson og félagar í KA mæta Grindavík.
Guðmann Þórisson og félagar í KA mæta Grindavík. Skapti Hallgrímsson

Grindavík sigraði KA 1:0 í 32-liða úrslitum Borgunarbikars karla í knattspyrnu í kvöld en leikið var í Grindavík. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.

Björn Berg Bryde gerði eina mark leiksins í kvöld en það kom undir lok fyrri hálfleiks.

Grindavík komst einnig í 16-liða úrslit bikarsins í fyrra en datt svo út fyrir FH á meðan KA komst alla leið í undanúrslit.

Dregið verður í 16-liða úrslitin á föstudag.

Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.

Leik lokið. Grindavík er komið áfram í 16-liða úrslit Borgunarbikars karla. Staðan hjá Víði og Sindra er enn markalaus.

62. Grindavík er enn að leiða leikinn. Á meðan er markalaust í hálfleik hjá Víði og Sindra.

46. Síðari hálfleikur er kominn af stað.

Hálfleikur. Það er kominn hálfleikur í Grindavík. Heimamenn eru yfir og eru þessa stundina á leið í 16-liða úrslit. Það er þó nóg eftir.

45. MAAAAAAAAARK!!! Grindavík 1:0 KA. Grindvíkingar eru komnir yfir. Gott mark undir lok fyrri hálfleiks. Það var Hafnfirðingurinn, Björn Berg Bryde, sem skoraði markið.

30. Grindvíkingar hafa þegar gert tvær skiptingar. Úlfar Hrafn Pálsson og Andri Rúnar Bjarnason koma af velli og inn koma þeir Hákon Ívar Ólafsson og William Daniels.

1. Leikur Grindavíkur og KA er kominn af stað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert