Flottur leikur

„Þetta var flottur leikur hjá okkur,“ sagði Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis, eftir 5:0 sigur liðsins á Þrótti í Pepsi deild karla í knattspyrnu í kvöld.

„Þróttarar hefðu getað komist yfir í upphafi leiks og jafnvel skorað meira, en við fengum líka færi og tvö flott mörk frá Birni Snæ. Ég var sérlega ánægður með leik minna manna, sérstaklega í seinni hálfleik, en þá léku strákarnir virkilega vel,“ sagði Ágúst.

Hann ætlar að gefa erlendu leikmönnunum vikufrí enda eru 17 dagar í næsta leik Fjölnis í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert