Haukar urðu í kvöld fyrstir til að leggja Keflvíkinga að velli í Inkasso-deildinni, 1. deild karla í knattspyrnu, en liðin áttust við að Ásvöllum í kvöld þar sem lokatölur urðu 4:3 Haukum í vil í fjörugum leik. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.
Með sigrinum jöfnuðu Haukar Keflavík að stigum en bæði lið hafa 10 stig í 5. og 6. sæti deildarinnar. Þrju stig eru í topplið Grindavíkur en norðanliðin KA og Þór hafa einnig 13 stig en þau leika á morgun.
Haukar komumst yfir strax á 10. mínútu leiksins en reynsluboltinn Hörður Sveinsson jafnaði metin á 26. mínútu.
Elton Renato Livramento kom Haukum á ný yfir aðeins mínútu síðar og Alexander Helgason bætti við þriðja markiinu á 34. mínútu, 3:1.
Fjórum mínútum síðar fékk Gunnlaugur Fannar Guðmundsson að líta rauða spjaldið í liði Hauka er hann fékk sitt annað gula spjald.
Það virtist ekki há Haukum mjög þar sem Alexander bætti við sínu öðru marki á 71. mínútu og kom Haukum í 4:1, manni færri.
Annar reynslubolti í liði Keflavíkur, Jónas Guðni Sævarsson, minnkaði muninn á 75. mínútu, 4:2 og enn var von. Mark Páls Olgeirs Þorsteinssonar kom hins vegar of seint, í uppbótartíma og lokatölur því 4:3 fyrir Hauka sem urðu þar með fyrstir til að sigra Keflavík í sumar.
Fyrir austan lögðu svo Fáskrúðsfirðingar í Leikni nágranna sína í Hugin á Seyðisfirði, 2:0. Antonio Calzado kom þeim á bragðið strax á 4. mínútu. Marko Nikolic fékk síðan beint rautt spjald á 27. mínútu í liði Hugins og það nýttu Leiknismenn hóflega.
Kristófer Páll Viðarsson skoraði eina mark síðari hálfleiks og innsiglaði 2:0 sigur Leiknis Fáskrúðsfjarðar.
Leiknir F. hefur nú unnið tvö leiki í röð, og hefur liðið sex stig í 10 sæti, stigi meira en HK sem hefur leikið leik færra, sex talsins. Huginn er á botninum með þrjú stig eftir sjö leiki.
Haukar Keflavík, staðan er 4:3, leik lokið
Huginn - Leiknir F, staðan er 0:2
Grindavík - Selfoss, staðan er 1:1, leik lokið
21:11 Leikjunum er lokið! Jafnt í Grindavík, en Leiknismenn frá Fáskrúðsfirði sigra Hugin.
21:10, MARK!! Varamaðurinn Ingi Rafn Ingibergsson jafnar metin fyrir Grindavík, staðan 1:1
21:05 Leik lokið! Haukar urðu fyrstir til að leggja Keflvíkinga að velli í sumar.
21:03 MARK! Páll Olgeir Þorsteinsson minnkar muninn í 4:3 fyrir Keflavík?
20.44 MARK! Jónas Guðni Sævarsson minnkar muninn fyrir Keflvíkinga, staðan orðin 4:2 gegn Haukum.
20.40 MARK! Alexander Helgason skorar sitt annað mark fyrir Hauka og kemur þeim í 4:1, manni færri!
20.27 MARK! Kristófer Páll Viðarsson kemr Fáskrúðsfirðingum í 2:0.
20.20 Síðari hálfleikur er hafinn!
20.00 Kominn hálfleikur í leikjunum.
19.55 RAUTT. Ekki bara góðar fréttir fyrir Hauka þar sem Gunnlaugur Fannar Guðmundsson fær rautt spjald. Leikmenn Hugins eru einnig manni færri, Marko Nikolic fær rautt spjald.
19.49 MARK! Alexander Helgason kemur Haukum í 3:1.
19.41 MÖRK! Haukar komust yfir eftir 10 mínútna leik gegn Keflavík, en reynsluboltinn Hörður Sveinsson jafnaði metin á 26. mínútu. Aðeins mínútu síðar skoraði hins vegar Elton Renato Livramento og kemur Haukum á ný yfir, 2:1!
19.19 MARK! Antonio Calzado Arevalo kemur Fáskrúðsfirðingum yfir gegn Hugin, staðan er 1:0, eftir fjögurra mínútna leik.
19.15 Leikirnir eru farnir af stað.
0. Byrjunarliðin eru klár:
Haukar | Keflavík | ||||||
BYRJUNARLIÐ | |||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Magnús Kristófer Anderson (M) | 21 | Sindri Kristinn Ólafsson (M) | ||||
4 | Aran Nganpanya | 4 | Haraldur Freyr Guðmundsson (F) | ||||
6 | Gunnar Gunnarsson | 5 | Jónas Guðni Sævarsson | ||||
9 | Elton Renato Livramento Barros | 9 | Sigurbergur Elísson | ||||
17 | Gunnlaugur Fannar Guðmundsson | 10 | Hörður Sveinsson | ||||
18 | Daníel Snorri Guðlaugsson | 13 | Marc McAusland | ||||
21 | Alexander Helgason | 20 | Magnús Þórir Matthíasson | ||||
22 | Aron Jóhannsson | 22 | Guðmundur Magnússon | ||||
24 | Haukur Ásberg Hilmarsson | 23 | Axel Kári Vignisson | ||||
27 | Alexander Freyr Sindrason (F) | 25 | Frans Elvarsson | ||||
28 | Haukur Björnsson | 45 | Tómas Óskarsson | ||||
VARAMENN | |||||||
14 | Terrance William Dieterich (M) | 1 | Sigmar Ingi Sigurðarson (M) | ||||
8 | Daði Snær Ingason | 3 | Guðjón Árni Antoníusson | ||||
12 | Gunnar Jökull Johns | 8 | Bojan Stefán Ljubicic | ||||
15 | Birgir Magnús Birgisson | 11 | Magnús Sverrir Þorsteinsson | ||||
20 | Stefnir Stefánsson | 15 | Ási Þórhallsson | ||||
23 | Dagur Dan Þórhallsson | 16 | Páll Olgeir Þorsteinsson | ||||
29 | Þórður Jón Jóhannesson | 24 | Daníel Gylfason |
Grindavík | Selfoss | ||||||
BYRJUNARLIÐ | |||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Hlynur Örn Hlöðversson (M) | 1 | Vignir Jóhannesson (M) | ||||
5 | Fransisco Eduardo Cruz Lemaur | 4 | Andrew James Pew | ||||
6 | Rodrigo Gomes Mateo | 5 | Jose Teodoro Tirado Garcia | ||||
8 | Gunnar Þorsteinsson | 7 | Svavar Berg Jóhannsson | ||||
9 | Matthías Örn Friðriksson | 8 | Ivan Martinez Gutierrez | ||||
10 | Alexander Veigar Þórarinsson | 11 | Þorsteinn Daníel Þorsteinsson | ||||
14 | Andri Rúnar Bjarnason | 12 | Giordano Pantano | ||||
17 | Magnús Björgvinsson | 13 | Richard Sæþór Sigurðsson | ||||
18 | Juan Manuel Ortiz Jimenez | 16 | James Mack | ||||
23 | Jósef Kristinn Jósefsson (F) | 18 | Arnar Logi Sveinsson | ||||
24 | Björn Berg Bryde | 21 | Stefán Ragnar Guðlaugsson (F) | ||||
VARAMENN | |||||||
29 | Anton Helgi Jóhannsson (M) | 28 | Daniel James Hatfield (M) | ||||
4 | Hákon Ívar Ólafsson | 2 | Sigurður Eyberg Guðlaugsson | ||||
7 | William Daniels | 3 | Birkir Pétursson | ||||
11 | Ásgeir Þór Ingólfsson | 10 | Ingi Rafn Ingibergsson | ||||
15 | Nemanja Latinovic | 17 | Haukur Ingi Gunnarsson | ||||
19 | Óli Baldur Bjarnason | 19 | Arnór Gauti Ragnarsson | ||||
25 | Aron Freyr Róbertsson | 22 | Ingþór Björgvinsson |
Huginn | Leiknir F. | ||||||
BYRJUNARLIÐ | |||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Atli Gunnar Guðmundsson (M) | 1 | Adrian Murcia Rodriguez (M) | ||||
3 | Blazo Lalevic | 3 | Almar Daði Jónsson | ||||
7 | Rúnar Freyr Þórhallsson | 4 | Antonio Calzado Arevalo | ||||
14 | Stefán Ómar Magnússon | 6 | Jesus Guerrero Suarez | ||||
15 | Jaime Jornet Guijarro | 7 | Arkadiusz Jan Grzelak | ||||
16 | Birkir Pálsson (F) | 8 | Björgvin Stefán Pétursson (F) | ||||
17 | Ingólfur Árnason | 9 | Ignacio Poveda Gaona | ||||
18 | Marko Nikolic | 10 | Jose Omar Ruiz Rocamora | ||||
21 | Orri Sveinn Stefánsson | 11 | Kristófer Páll Viðarsson | ||||
22 | Ivan Eduardo Nobrega Silva | 14 | Hilmar Freyr Bjartþórsson | ||||
23 | Elmar Bragi Einarsson | 18 | Valdimar Ingi Jónsson | ||||
VARAMENN | |||||||
4 | Emil Smári Guðjónsson | 12 | Amir Mehica (M) | ||||
5 | Gauti Skúlason | 2 | Guðmundur Arnar Hjálmarsson | ||||
8 | Anton Freyr Ársælsson | 16 | Marinó Óli Sigurbjörnsson | ||||
9 | Johnatan P. Alessandro Lama | 19 | Alexander Ainscough | ||||
11 | Pétur Óskarsson | 21 | Tadas Jocys | ||||
13 | Ingimar Jóhannsson | 22 | Dagur Már Óskarsson | ||||
23 | Sólmundur Aron Björgólfsson |
0. Byrjunarliðin koma innan skamms.