Fótboltaveisla á Akureyri næstu daga

Mynd frá úrslitaleik A-liða í fyrra.
Mynd frá úrslitaleik A-liða í fyrra. mbl.is/Skapti

N1 mótið í 5. flokki drengja í knattspyrnu hefst á Akureyri í dag, 29. júní og stendur til 2. júlí. Mótið í ár er það langfjölmennasta sem haldið hefur verið frá upphafi, en búist er við um 1.900 keppendum og 182 liðum til þátttöku en þátttakendur eru 11-12 ára strákar.

Búist við þúsundum gesta til Akureyrar í tengslum við mótið en þetta er í þrítugasta skipti sem ungir drengir koma saman og keppa í knattspyrnu á N1 mótinu.

„Við verðum með beina útsendingu í samstarfi við Sporttv.is annað árið í röð en það mæltist afar vel fyrir í fyrra. Við verðum með myndavélar og dróna á svæðinu. Auk þess hvetjum við foreldra til að vera duglegir að taka myndir af drengjunum og merkja með #n1mótið á samfélagmiðlum,“ sagði Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA.

N1 er styrktaraðili mótsins en framkvæmdin hefur algerlega verið í höndum knattspyrnufélags Akureyrar, KA. Á síðasta árið endurnýjuðu N1 og KA samstarfssamning sinn vegna mótsins til ársins 2019. „Samstarf okkar við KA er okkur sérstaklega dýrmætt og við erum gríðarlega stolt af því að fá að taka þátt í því stóra verkefni sem N1 mótið er,“ segir Þyrí Dröfn Konráðsdóttir, markaðsstjóri N1. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert