Bojan á förum frá Keflavík

Bojan Stefán Ljubicic í leik með Keflavík gegn KA í …
Bojan Stefán Ljubicic í leik með Keflavík gegn KA í sumar. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Knattspyrnumaðurinn Bojan Stefán Ljubicic er á förum frá Keflavík en hann hefur fengið heimild frá stjórn félagsins til að fara þaðan á láni út þetta keppnistímabil.

Bojan er 24 ára gamall miðjumaður eða kantmaður og hefur leikið allan sinn feril með Keflvíkingum, með meistaraflokki félagsins frá 17 ára aldri, og lék með U19 ára landsliðinu á sínum tíma. Hann hefur spilað sjö leiki með Keflvíkingum í 1. deildinni í sumar en ekki fengið tækifæri í síðustu leikjum liðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert