Óviss hvort hann haldi áfram

Igor Taskovic er óviss hvort hann haldi áfram með Víkingum.
Igor Taskovic er óviss hvort hann haldi áfram með Víkingum. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Igor Taskovic, fyrirliði Víkings Reykjavíkur, stóð vaktina í 1:2 sigurleik gegn Þrótturum í dag. Hann segist óviss hvort hann haldi áfram hjá Víkingum á næstu leiktíð. 

„Ég fer núna til Þýskalands en fjölskyldan mín býr þar. Ég verð þar næstu mánuðina og eftir það sé ég til. Ég er í mjög erfiðri stöðu. Konan mín býr ein í Þýskalandi með dóttur okkar sem er í skóla þar,“ sagði Taskovic að leik loknum. 

„Ég er ekki að segja að ég sé hættur hjá Víkingum en það getur gerst.“

Spurður út í sumarið með Víkingum sagðist hann ánægður með ýmislegt. „Við fengum 32 stig, ég spilaði alla leikina og þarna eru ungir, góðir leikmenn. Öll fjögur árin hjá mér hafa verið jafnskemmtileg.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert