Viktor Örn tekur slaginn með ÍR

Viktor Örn Guðmundsson handsalar samninginn í dag.
Viktor Örn Guðmundsson handsalar samninginn í dag. Ljósmynd/ÍR

Viktor Örn Guðmundsson skrifaði í dag undir samning við knattspyrnudeild ÍR um að leika með liðinu næsta sumar.

Viktor Örn lék stórt hlutverk með KV í 2. deildinni í sumar og skoraði ellefu mörk. Hann er uppalinn í FH en hefur einnig leikið með Fylki, Víkingi, KA og Fjarðabyggð.

ÍR stóð uppi sem sigurvegari í 2. deildinni nú í haust og er að þétta raðirnar fyrir 1. deildina næsta sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert