Ólafsvíkingar semja við sjö efnilega

Aftari röð: Gunnsteinn Sigurðsson stjórnarmaður, Jónas Gestur Jónasson formaður, Konráð …
Aftari röð: Gunnsteinn Sigurðsson stjórnarmaður, Jónas Gestur Jónasson formaður, Konráð Ragnarsson, Sumarliði Kristmundsson, Sigurjón Kristinsson, Brynjar Vilhjálmsson, Ejub Purisevic þjálfari og Hilmar Hauksson stjórnarmaður. Fremri röð: Pétur Steinar Jóhannsson, Hilmar Björnsson og Sanjin Horoz.

Knattspyrnudeild Víkings í Ólafsvík hefur gengið frá samningum við sjö unga leikmenn félagsins og ekki er ólíklegt að einhverjir þeirra komi við sögu með liðinu í úrvalsdeildinni á næsta tímabili.

<span><span>Þetta eru Konráð Ragnarsson, Sumarliði Kristmundsson, Sigurjón Kristinsson, Brynjar Vilhjálmsson, </span></span>

Pétur Steinar Jóhannsson, Hilmar Björnsson og Sanjin Horoz en þeir eru 16-18 ára gamlir og nokkrir þeirra léku með sameiginlegu liði Ólafsvíkinga og Skagamanna í 3. flokki í ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert