Blikar komnir í jólagírinn (myndskeið)

Oliver Sigurjónsson og fleiri leikmenn Breiðabliks koma við sögu í …
Oliver Sigurjónsson og fleiri leikmenn Breiðabliks koma við sögu í jólamyndbandinu. mbl.is/Styrmir Kári

Leikmenn karlaliðs Breiðabliks í knattspyrnu virðast vera komnir í jólaskap en þeir hafa sent frá sér jólamyndband í samvinnu við einn sinn aldyggasta stuðningsmann.

Það eru leikmennirnir Davíð Kristján Ólafsson, Elfar Freyr Helgason, Gísli Eyjólfsson, Guðmundur Friðriksson, Höskuldur Gunnlaugsson og Oliver Sigurjónsson sem bregða á leik í myndbandinu, ásamt Jóhanni Fannari Kristjánssyni stuðningsmanni. Jóhann Fannar stýrir meðal annars dansi hjá leikmönnum en undir hljómar lagið Jólin eru að koma, með hljómsveitinni Í svörtum fötum. Myndbandið má sjá hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert