Sigurður Egill Lárusson, leikmaður bikarmeistara Vals, er á leið til æfinga hjá Jablonec í Tékklandi og mun vera þar næstu daga. Þá fer hann með liðinu í æfingaferð til Portúgals. Þetta staðfesti hann við 433.is.
Þar er sagt að forráðamenn Jablonec hafi komið sér í samband við Sigurð Egil eftir að hann tók þátt í China Cup, alþjóðlegu knattspyrnumóti í Kína með íslenska landsliðinu fyrr í þessum mánuði. Hann spilaði þá sinn fyrsta landsleik.
Sigurður Egill spilaði 21 leik í Pepsi-deildinni með Val í sumar og skoraði sex mörk, en hann er uppalinn í Víkingi.
Nú er vetrarfrí í tékknesku deildinni, en Jablonec er í 10. sæti af 16 liðum eftir 15 umferðir og er með 17 stig. Félagið starfar í samnefndum bæ í norðurhluta Tékklands, rétt við landamærin að Póllandi.