Öruggur sigur KR-inga

Skúli Jón Friðgeirsson skoraði eitt af mörkum KR-inga.
Skúli Jón Friðgeirsson skoraði eitt af mörkum KR-inga. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

KR hafði betur gegn Fjölni í A-deild Lengjubikarkeppninnar í knattspyrnu en liðin áttust við í Egilshöllinni í kvöld.

KR-ingar gerðu út um leikinn í fyrri hálfleik en staðan eftir hann var, 3:0. Kennie Knak Chopart, Skúli Jón Friðgeirsson og Morten Beck skoruðu mörkin. Gunnar Már Guðmundsson, herra Fjölnir, kom inná í seinni hálfleik og minnkaði muninn um miðjan seinni hálfleik.

KR er með fjögur stig eftir tvo leiki en Fjölnir er án stiga.

Markaskorarar voru fengnir hjá úrslit.net.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert