María Þórisdóttir er á varamannabekk Noregs sem mætir Íslandi í fyrsta leik þjóðanna á Algarve-bikarnum í knattspyrnu sem fram fer í Portúgal.
Noregur stillir upp sterku liði og er skemmst að minnast á að Ada Hegerberg er í fremstu víglínu. Hún var kosin knattspyrnukona ársins í Evrópu á síðasta ári.
Ásamt Maríu á bekknum er einnig Caroline Hansen, sem er ein stærsta stjarna Noregs, en lið þeirra má sjá hér að neðan.
Mark: Ingrid Hjelmseth
Vörn: Ingrid Moe Wold, Maren Mjelde, Stine Reinås, Elise Thorsnes
Miðja: Ingvild Isaksen, Ingrid Marie Spord, Andrine Stolsmo Hegerberg, Kristine Minde
Sókn: Lisa-Marie Karlseng Utland, Ada Stolsmo Hegerberg.
Byrjunarlið Íslands má sjá HÉR en leikurinn verður í beinni textalýsingu hér á mbl.is.