Þór/KA í undanúrslit

Stephany Mayor skoraði tvö mörk í dag.
Stephany Mayor skoraði tvö mörk í dag. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Þór/KA tryggði sér sæti í undanúrslitum Lengjubikars kvenna með 2:0 sigri á ÍBV í Akraneshöllinni í dag. Eyjakonur þurfa aftur á móti að treysta á að Stjarnan tapi á móti Val í kvöld, til að komast í undanúrslitin. 

Stephany Mayor sá um að skora bæði mörk Þór/KA í dag. Það fyrra kom á 7. mínútu og það seinna tíu mínútum fyrir leikslok. 

Þór/KA fór upp í 3. sæti riðilsins með sigrinum, en fjögur efstu liðin komast áfram og leika í undanúrslitum. Stjarnan getur tekið 3. sætið af Þór/KA með sigri á Val í kvöld. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert