Gísli framlengir við Breiðablik

Gísli Eyjólfsson fagnar síðasta sumar.
Gísli Eyjólfsson fagnar síðasta sumar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knattspyrnumaðurinn Gísli Eyjólfsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Breiðablik, en þetta kemur fram á blikar.is í dag.

Gísli er 22 ára miðjumaður, sem hefur leikið 46 leiki fyrir Breiðablik og skorað í þeim sex mörk en þar af eru 23 leikir og 2 mörk í úrvalsdeildinni.

Gísli spilaði með Augnabliki árið 2013 en auk þess hefur hann leikið sem lánsmaður fyrir bæði Hauka og Víking Ólafsvík. Hann vann sér inn sæti í liði Breiðabliks síðasta sumar, eftir lánsdvöl í Ólafsvík fyrri hluta tímabilsins, og stóð sig með miklum ágætum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert