Stórsigur hjá Fylki í bikarnum

Albert Brynjar Ingason skoraði eitt marka Fylkis gegn Vatnaliljunum í …
Albert Brynjar Ingason skoraði eitt marka Fylkis gegn Vatnaliljunum í dag. mbl.is/Golli

Sex leikir fóru fram í annarri umferð Borgunarbikars karla í knattspyrnu klukkan 14.00 í dag. Engin verulega óvænt úrslit áttu sér stað í leikjunum sex, en úrslit og markaskorara í leikjunum má sjá hér að neðan.

Árborg - Hamar, 4:3 eftir vítaspyrnukeppni.
Tindastóll - Þór, 1:2
Hólmar Daði Skúlason 69. -- Orri Freyr Hjaltalín 14., Jóhann Helgi Hannesson 44. Rautt spjald: Bjarni Smári Gíslason (Tindastóli) 40.
Álftanes - Ægir, 0:2
Gunnar Bent Helgason 7., Gunnar Orri Guðmundsson 90. 
Kári - Augnablik, 3:0
Guðlaugur Þór Brandsson 85., 90., Andri Þór Júlíusson 87. 
Sindri - Huginn, 4:1 - eftir framlengingu
Nedo Eres 55., 90., 100., Seval Zahirovic 119. -- Stefán Ómar Magnússon 1. Rautt spjald: Stefan Spasic (Hugin) 89. 
Fylkir - Vatnaliljurnar, 7:0
Andrés Már Jóhannesson 15., Albert Brynjar Ingason 29., Bjarki Steinar Björnsson (sjálfsmark) 43., Oddur Ingi Guðmundsson 48., 71., Elís Rafn Björnsson 65., Valdimar Þór Ingimundarson 72.

Sigurliðin eru komin i 32ja liða úrslitin þar sem liðin tólf úr Pepsi-deild karla mæta til leiks en þau verða leikin um miðjan maí. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert