Víðir sló Keflavík úr leik

Víðismenn slógu út granna sína í Keflavík.
Víðismenn slógu út granna sína í Keflavík. Ljósmynd/Facebook-síða Víðis

Óvænt úrslit urðu í annarri umferð Borgunarbikars karla í knattspyrnu í dag þegar Víðir sló nágranna sína, Keflavík, úr leik. Staðan í Reykjaneshöllinni var markalaus eftir venjulegan leiktíma og framlengingu og úrslitin réðust eftir vítaspyrnukeppni.

Víðir sem tryggði sér sæti í 2. deildinni á komandi leiktíð hafði betur í vítaspyrnukeppninni, 5:4, eftir eina umferð í bráðabana. Keflavík sem mun leika í 1. deildinni í sumar, annað árið í röð, er því úr leik í bikarkeppninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert