Fyrsti sigur Þórsara

Þórsarar fagna marki.
Þórsarar fagna marki. mbl.is/Skapti

Þórsarar frá Akureyri eru komnir á blað í Inkasso-deildinni í knattspyrnu en eftir þrjú töp í fyrstu þremur umferðunum hrósuðu Þórsarar 2:1 sigri gegn Haukum á Þórsvellinum í dag.

Haukarnir komust yfir strax á 5. mínútu þegar Elton Renato Barros skoraði. Ármann Pétur Ævarsson jafnaði metin fyrir norðanmenn með marki úr vítaspyrnu á 34. mínútu og Gunnar Örvar Stefánsson tryggði Þórsurum fyrsta sigurinn í deildinni þegar hann skoraði sigurmarkið á 46. mínútu leiksins.

Með sigrinum komust Þórsarar úr fallsæti en þeir eru í 10. sætinu með 3 stig en Haukar hafa 5 stig í 8. sætinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert