Aron Einar að upplifa sitt versta

Aron Einar Gunnarsson fyrirliði Íslands í fótbolta.
Aron Einar Gunnarsson fyrirliði Íslands í fótbolta. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Það er illa farið með Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliða Íslands í knattspyrnu, í dag.

Félagar Arons eru að steggja hann og klæddu hann meðal annars upp í KA-búning, en sem kunnugt er þá er Aron gríðarlega harður Þórsari enda alinn upp í yngri flokkum félagsins. Hann hefur meðal annars látið hafa eftir sér að það lið sem hann myndi aldrei spila með, sé KA.

Aron Einar hefur meðal annars verið látinn stýra tabata-tíma í Word Class í KA-búningnum og settur í förðun eins og myndin hér að neðan sýnir.

Aron Einar mun giftast Kristbjörgu Jónasdóttur skömmu eftir landsleik Íslands og Króatíu þann 11. júní næstkomandi. Meðal þeirra sem eru að steggja hann eru Rúrik Gíslason, landsliðsmaður í knattspyrnu, og Sveinbjörn Pétursson landsliðsmarkvörður í handknattleik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert