Leiknir R. og Haukar gerðu markalaust jafntefli í 8. umferð Inkasso-deildarinnar, 1. deild karla í knattspyrnu, á Leiknisvellinum í kvöld. Gunnar Gunnarsson fékk að líta rauða spjaldið í liði Hauka þegar fimm mínútur voru eftir.
Liðin eru í 6. og 7. sæti með tíu stig og sigla þar lygnan sjó. Leiknir tekur á móti ÍR í grannaslag í næstu umferð og Haukar mæta Leikni Fáskrúðsfirði.