Efete leikur einn leik til viðbótar

Michee Efete.
Michee Efete. mbl.is/Ómar Óskarsson

Enski miðvörðurinn Michee Efete mun leika einn leik til viðbótar fyrir Breiðablik í Pepsi-deildinni í knattspyrnu áður en hann heldur heim til Englands. Þetta staðfesti hann á Twitter. Efete hefur verið á láni hjá Breiðabliki frá Norwich og staðið sig með prýði. 

Hann átti upprunalega að halda heim á leið eftir leikinn við Grindavík í gær, en hann hefur nú ákveðið að taka einn leik til viðbótar. Breiðablik mætir FH 3. júlí næstkomandi og verður það síðasti leikur Efete hér á landi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert