KA fær króatískan miðvörð

Vedran Turkalj og Srdjan Tufegdzic, þjálfari KA.
Vedran Turkalj og Srdjan Tufegdzic, þjálfari KA. Ljósmynd/Heimasíða KA

Knattspyrnudeild KA hefur gengið frá samningi við króatíska miðvörðinn Vedran Tirkalj til loka leiktíðar. Turkalj er 29 ára gamall og kemur hann til KA frá NK Aluminij í Slóveníu. Leikmaðurinn á tólf leiki fyrir yngri landslið Króatíu.

Guðmann Þórisson, einn besti leikmaður KA á síðustu leiktíð, meiddist í upphafi leiktíðar og er óvíst að hann verði meira með KA í sumar og hefur félagið því ákveðið að fá Turkalj til liðs við sig. 

Eftir góða byrjun í sumar hefur KA tapað fjórum af síðustu fimm leikjum sínum í deildinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert