Elvar Ingi sá um tíu Gróttumenn

Elvar Ingi Vignisson skoraði bæði mörk Selfyssinga.
Elvar Ingi Vignisson skoraði bæði mörk Selfyssinga. mbl.is/Ómar Óskarsson

Elvar Ingi Vignisson skoraði bæði mörk Selfyssinga í 2:0 útisigri á Gróttu í Inkasso-deildinni í knattspyrnu í kvöld. Gróttumenn voru manni færri frá 29. mínútu en þá fékk Andri Þór Magnússon beint rautt spjald. 

Fyrra mark Elvars kom á 41. mínútu og bætti hann við seinna markinu á 63. mínútu. Selfoss fór upp í 5. sætið og 21 stig með sigrinum en Grótta er enn í 11. og næstneðsta sæti með aðeins átta stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert