Höfnuðu tilboðum frá erlendum félögum

Hólmbert Aron Friðjónsson
Hólmbert Aron Friðjónsson mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stjarnan hefur hafnað þremur tilboðum frá félögum í norðurlöndunum í knattspyrnumanninn Hólmbert Aron Friðjónsson. Þetta kemur fram á fotbolti.net í dag en um er að ræða félög í efstu og næstefstu deild. 

Hinn 24 ára gamli Hólmbert Aron kom til Stjörnunnar frá KR í fyrra en hann hefur leikið sem atvinnumaður hjá Bröndby í Danmörku og Celtic í Skotlandi. 

Victor Ingi Olsen, rekstrarstjóri meistaraflokks hjá Stjörnunni segir líklegt að Stjarnan og Hólmbert muni ræða saman að tímabili loknu og gæti framherjinn þá fært sig um set. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert