Þór/KA nálgast Íslandsmeistaratitilinn

Stephany Mayor skoraði þrennu í kvöld.
Stephany Mayor skoraði þrennu í kvöld. mbl.is/Golli

Stephany Mayor skoraði þrennu fyrir Þór/KA sem hafði betur gegn Haukum á útivelli í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu í kvöld, 4:1. 

Vienna Behnke kom Haukum yfir á 24. mínútu en Bianca Sierra jafnaði skömmu síðar og var staðan 1:1 í hálfleik. Þór/KA var hins vegar töluvert sterkari aðilinn í síðari hálfleik og skoraði Stephany þrjú mörk á 13 mínútna kafla snemma í honum og tryggði toppliðinu enn einn sigurinn. 

Þór/KA er í toppsætinu með 35 stig, átta stigum meira en Stjarnan, Breiðablik og ÍBV sem koma þar á eftir, en fimm umferðir eru eftir af deildinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert