Albert með þrennu í öruggum sigri

Ásgeir Örn Arnþórsson í baráttunni við Kristinn Justiniano Snjólfsson í …
Ásgeir Örn Arnþórsson í baráttunni við Kristinn Justiniano Snjólfsson í dag. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Albert Brynjar Ingason skoraði þrjú mörk fyrir Fylki sem vann öruggan 4:1-heimasigur á Leikni F. í Inkasso-deildinni í knattspyrnu í dag. Fylkir fór upp í annað sæti deildarinnar með sigrinum. 

Andrés Már Jóhannesson kom Fylki í 1:0 á 22. mínútu en fimm mínútum síðar jafnaði Hilmar Freyr Bjartþórsson. Staðan var hins vegar aðeins jöfn í tvær mínútur því Albert Brynjar Ingason kom Fylki aftur yfir á 29. mínútu og á 35. mínútu skoraði hann sitt annað mark og kom Fylki í 3:1. 

Albert var ekki hættur því hann skoraði sitt þriðja mark á 74. mínútu og gulltryggði öruggan sigur Fylkismanna. Fylkir er í öðru sæti með 33 stig, einu stigi minna en topplið Keflavíkur. Leiknir er í botnsætinu með aðeins sjö stig og þarf kraftaverk til að liðið falli ekki um deild. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert