Úrslitaleikurinn færður

Fleiri stuðningsmenn ÍBV ættu að komast í Laugardalinn 9. september.
Fleiri stuðningsmenn ÍBV ættu að komast í Laugardalinn 9. september. Sigfús Gunnar

Úrslitaleikur Borgunarbikars kvenna hefur verið færður um einn dag, en leikurinn verður laugardaginn 9. september í stað föstudagsins áttunda. Mun það vera gert til að auðvelda stuðningsmönnum ÍBV að mæta á leikinn.

Karlalið ÍBV mætir KR í Pepsi-deildinni kl. 14 sama dag, en liðið varð bikarmeistari á dögunum. Bæði lið ÍBV voru í bikarúrslitum í fyrra, en þá var leikur kvennaliðsins á föstudegi.

Úrslitaleikur Stjörnunnar og ÍBV fer því fram 9. september kl. 17:00 á Laugardalsvelli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert