Eyjólfur búinn að velja hópinn

Byrjunarlið Íslands í leiknum gegn Albaníu.
Byrjunarlið Íslands í leiknum gegn Albaníu. mbl.is/Golli

Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U21 landsliðs karla í knattspyrnu, hefur valið hópinn sem mætir Slóvakíu 5. október og Albaníu 10. október í riðlakeppni EM19, en báðir leikirnir fara fram ytra. 

Ísland lék fyrsta leik sinn í undankeppninni í byrjun mánaðarins og tapaði fyrir Albaníu, 3:2, á Víkingsvelli.

Þrír nýliðnar eru í hópnum en það eru þeir Marinó Axel Helgason, Mikael Neville Anderson og Hlynur Örn Hlöðversson.

U21-landsliðshópurinn er þannig skipaður:

Markverðir:
Sindri Kristinn Ólafsson (Keflavík)
Aron Snær Friðriksson (Fylki)
Hlynur Örn Hlöðversson (Fram)

Aðrir leikmenn:
Albert Guðmundsson (PSV)
Alfons Sampsted (Norrköping)
Arnór Gauti Ragnarsson (ÍBV)
Axel Óskar Andrésson (Reading)
Ásgeir Sigurgeirsson (KA)
Hans Viktor Guðmundsson (Fjölni)
Óttar Magnús Karlsson (Molde)
Viktor Karl Einarsson (AZ Alkmaar)
Jón Dagur Þorsteinsson (Fulham)
Júlíus Magnússon (Heerenveen)
Samúel Kári Friðjónsson (Vålerenga)
Tryggvi Hrafn Haraldsson (Halmstad)
Orri Sveinn Stefánsson (Fylki)
Ari Leifsson (Fylki)
Felix Örn Friðriksson (ÍBV)
Marinó Axel Helgason (Grindavík)
Mikael Neville Anderson (Vendsyssel)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert