Allir leikmenn íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu voru með á æfingu liðsins þegar það æfði í Wiesbaden í Þýskalandi í gær, í aðdraganda stórleiks Íslands og Þýskalands í undankeppni HM.
Liðin mætast á föstudag klukkan 14 að íslenskum tíma í leik sem gæti haft mikið að segja um möguleika þjóðanna á að komast á HM.
Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari sagði við Morgunblaðið að allir leikmenn væru heilir heilsu en hann valdi tuttugu leikmenn í ferð landsliðsins til Þýskalands og Tékklands, þar sem liðið spilar næsta þriðjudag. Átján leikmenn verða svo valdir í hvorn leik fyrir sig.
Ísland vann stórsigur á Færeyjum, 8:0, í eina leik sínum til þessa í undankeppninni en Þýskaland hefur unnið Slóveníu 6:0 og 1:0-útisigur á Tékkum.
Sara Björk á æfingu með íslenska kvennalandsliðinu í knattpyrnu.
Ljósmynd/KSÍ
Dagný Brynjarsdóttir þungt hugsi á æfingu með íslenska kvennalandsliðinu í knattspyrnu.
Ljósmynd/KSÍ
Guðbjörg Gunnarsdóttir spyrnir frá marki sínu á æfingu með íslenska kvennalandsliðinu í knattspyrnu.
Ljósmynd/KSÍ
Það var létt yfir Fanndísi Friðriksdóttur á æfingu með íslenska kvennalandsliðinu í knattspyrnu.
Ljósmynd/KSÍ
Ingibjörg Sigurðardóttir einbeitt á æfingu með íslenska kvennalandsliðinu í knattspyrnu.
Ljósmynd/KSÍ
Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir fagna marki á æfingu með íslenska kvennalandsliðinu í knattspyrnu.
Ljósmynd/KSÍ
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir á æfingu með íslenska kvennalandsliðinu í knattspyrnu.
Ljósmynd/KSÍ
Sandra María Jessen á æfingu með íslenska kvennalandsliðinu í knattspyrnu.
Ljósmynd/KSÍ
Anna Björk Kristjánsdóttir á æfingu með íslenska kvennalandsliðinu í knattspyrnu.
Ljósmynd/KSÍ
Katrín Ásbjörnsdóttir á æfingu með íslenska kvennalandsliðinu í knattspyrnu.
Ljósmynd/KSÍ
Rakel Hönnudóttir á æfingu með íslenska kvennalandsliðinui í knattspyrnu.
Ljósmynd/KSÍ