Þurfum nýjan völl fyrir þessi frábæru lið

Byrjunarlið Íslands í Þýskalandi í dag.
Byrjunarlið Íslands í Þýskalandi í dag. Ljósmynd/Reimund Sand

Guðni Bergsson formaður KSÍ eins og fjölmargir Íslendingar voru fljótir að bregðast við á twitter eftir glæsilegan sigur íslenska kvennalandsliðsins gegn ólympíumeisturum Þjóðverja í undankeppni HM í knattspyrnu í dag.

„Allt að gerast eða hvað. Vel gert stelpur!! Þurfum nýjan völl fyrir þessi frábæru lið okkar,“ skrifar Guðni á twitter síðu sína.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert