Björgvin til ÍR-inga

Björgvin handsalar samninginn við ÍR-inga.
Björgvin handsalar samninginn við ÍR-inga. Ljósmynd/Facebook-síða ÍR

Knattspyrnumaðurinn Björgvin Stefán Pétursson er genginn til liðs við ÍR-inga og hefur skrifað undir tveggja ára samning við Breiðholtsliðið.

Björgvin, sem er 26 ára gamall, kemur til ÍR frá Leikni Fáskrúðsfirði sem hann hefur leikið með síðustu 11 árin eða frá því hann var 15 ára gamall og hann hefur verið fyrirliði liðsins undanfarin ár.

Björgvin lék 21 leik með Leiknismönnum sem féllu úr Inkasso-deildinni í haust en ÍR-ingar sem voru nýliðar í deildinni héldu sæti sínu og enduðu í 10. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert