Fengu fullt af færum gegn Þjóðverjum

Hægri bakvörðurinn Rakel Hönnudóttir lék afar vel og lagði upp mark gegn Þýskalandi á föstudaginn. Hún býst við erfiðum leik í Tékklandi. 

Rakel segir þær tékknesku vera mjög sterkar en Ísland mætir Tékklandi í dag í Znojmo klukkan 16 að íslenskum tíma. 

„Þær töpuðu 0:1 og það var sjálfsmark sem Tékkarnir gerðu. Þær stóðu vel í Þjóðverjunum og áttu fullt af færum í þeim leik. Þær eru bara með mjög fínt lið,“ sagði Rakel meðal annars en viðtalið við hana í heild sinni er að finna í meðfylgjandi myndskeiði. 

Frá landsliðsæfingu í Tékklandi í gær. Rakel er hægra megin …
Frá landsliðsæfingu í Tékklandi í gær. Rakel er hægra megin við Hallberu sem heldur á borðanum. mbl.is/Kris
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert