Systurnar Margrét Lára og Elísa Viðarsdætur, landsliðskonur í knattspyrnu og leikmenn Vals, eru báðar barnshafandi og óvíst hvað þær munu spila mikið með Val næsta sumar.
Báðar eru þær frá vegna alvarlegra hnémeiðsla eftir að hafa slitið krossband á vormánuðum, en báðar eiga þær svo von á sér næsta vor eftir því sem fotbolti.net greinir frá.
Margét Lára er markahæst í sögu íslenska landsliðsins, hefur skorað 77 mörk í 117 leikjum, en Elísa á að baki 35 landsleiki.