ÍA og Breiðablik áttu flesta leikmenn 2017

Albert Hafsteinsson úr ÍA og Davíð Kristján Ólafsson úr Breiðabliki.
Albert Hafsteinsson úr ÍA og Davíð Kristján Ólafsson úr Breiðabliki. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

ÍA og Breiðablik áttu flesta leikmenn í Pepsi-deild karla í knattspyrnu á keppnistímabilinu 2017. Þetta kemur í ljós þegar farið er yfir bakgrunn allra leikmanna sem spiluðu í deildinni á árinu.

ÍA og Breiðablik ólu upp hvort um sig 21 leikmann sem lék í deildinni á þessu ári. Skagamenn voru með nítján af þessum leikmönnum í sínum röðum en Blikar voru með fimmtán.

Tveir Skagamenn léku því með öðrum liðum, Andri Adolphsson með Val og Arnþór Ingi Kristinsson með Víkingi R., en sex Blikar voru á mála hjá öðrum félögum á árinu 2017. Þar af tveir hjá KR, Arnór Sveinn Aðalsteinsson og Finnur Orri Margeirsson, og tveir hjá KA, þeir Guðmann Þórisson og Steinþór Freyr Þorsteinsson.

Stjarnan kemur síðan í þriðja sæti en 15 af leikmönnum deildarinnar 2017 eru uppaldir í Garðabænum. Ellefu þeirra léku á heimaslóðum með Stjörnunni en fjórir með öðrum liðum.

Í Morgunblaðinu í dag má sjá hvaðan allir leikmenn Pepsi-deildar karla 2017 komu og hvert hlutfall uppalinna leikmanna var hjá hverju liði fyrir sig.

Sjá fréttaskýringu Víðis Sigurðssonar í heild í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert