Víðir og Þróttur V. senda kvennalið til leiks

Merki Víðis í Garði og Þróttar Vogum.
Merki Víðis í Garði og Þróttar Vogum. Ljósmynd/Samsett

Víðir og Þróttur Vogum hafa ákveðið að senda sameiginlegt lið í bikarkeppni KSÍ undir merkjum Víðir/Þróttur V. Fram kemur í yfirlýsingu frá Víði/Þrótti að hugmyndin kviknaði fyrst þegar KSÍ fjölgaði um eina deild í meistaraflokki kvenna.

Á dögunum hittust fulltrúar félaganna og ákveðið var að byrja á þátttöku í bikarkeppninni. Ef vel tekst til þá verður tekin ákvörðun hvort það sé grunnur til að byggja á fyrir næsta ár.

“Félögin vilja efla kvennaknattspyrnuna á Suðurnesjunum því þar eru fullt af stelpum sem hafa lagt skóna a hilluna, eru í hléi frá knattspyrnu eða hafa flosnað upp úr liðunum sem fyrir eru og því viljum við láta reyna á þetta uppbyggilega verkefni í sameiningu,” að sögn Marteins Ægissonar framkvæmdastjóra Þróttar og Sólmundar Einvarðssonar formanns Víðis. 

Meistaraflokkur kvenna hefur ekki verið starfræktur í Garði síðan 2005 ( að undanskildu 2009 þar sem var spilað undir merkjum GRV) og verður þetta í fyrsta sinn sem Þróttur Vogum sendir lið til leiks í meistaraflokki kvenna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert