Bojan Stefán aftur til Keflavíkur

Bojan Stefán Ljubicic í leik með Keflavík.
Bojan Stefán Ljubicic í leik með Keflavík. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Knattspyrnumaðurinn Bojan Stefán Ljubicic er genginn til liðs við Keflvíkinga á nýjan leik en hann lék með Fjölni á síðasta keppnistímabili.

Bojan er 25 ára  gamall miðjumaður, uppalinn í Keflavík og lék með meistaraflokki félagsins frá 2009 til 2016. Hann á að baki 81 leik með liðinu í úrvalsdeildinni og 5 mörk, og lék einnig fyrri hluta tímabilsins 2016 með Keflavík í 1. deild. Þá gekk hann til liðs við Fram og lék þar út tímabilið og spilaði síðan með Fjölni á síðasta ári. Þar lék hann 9 leiki í úrvalsdeildinni.

Bojan er annar leikmaðurinn sem nýliðar Keflavíkur fá í sínar raðir í vetur en hinn er Aron Freyr Róbertsson frá Grindavík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert