Jafnt í toppslagnum í Fífunni

Agla María Albertsdóttir skoraði mark Breiðabliks.
Agla María Albertsdóttir skoraði mark Breiðabliks. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Breiðablik og Valur gerðu í dag 1:1-jafntefli í Lengjubikar kvenna í fótbolta í Fífunni. Agla María Albertsdóttir kom Breiðabliki yfir á 8. mínútu en Ásdís Karen Halldórsdóttir jafnaði á 69. mínútu og þar við sat.

Valur er á toppi riðilsins með tíu stig, þremur meira en Breiðablik sem er í 2. sæti eftir fjóra leiki. Valur mætir ÍBV í síðustu umferð riðilsins og Breiðablik mætir Stjörnunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert