Þrír erlendir leikmenn á leið til Vals

Valskonur fá liðsstyrk.
Valskonur fá liðsstyrk. mbl.is/Hari

Valur er við það að semja við þrjá erlenda leikmenn fyrir átökin í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu í sumar.

Leikmennirnir sem um ræðir eru Arianna Romero sem kemur frá Vålerenga í Noregi, Teresa Noyola sem lék síðast með Kibi í Japan og Crystal Thomas sem lék með Medkila í Noregi á síðasta tímabili. Pétur Pétursson, þjálfari Vals, sagði við fotbolti.net að þær væru allar farnar að æfa með liðinu en bíða læknisskoðunar og leikheimildar.

Arianna Romero er varnarmaður og lék hér á landi með ÍBV sumarið 2016, spilaði þá alla 18 leiki Eyjakvenna í úrvalsdeildinni, en hún er mexíkóskur landsliðsmaður með 33 landsleiki að baki. Hún spilaði átta leiki með Vålerenga á síðasta tímabili.

Miðjumaðurinn Teresa Noyola er einnig mexíkósk landsliðskona, en hún hefur spilað 44 landsleiki. Hún lék áður í sterkustu deild Bandaríkjanna með Houston Dash, Kansas City og Seattle Reign, og einnig eitt tímabil með Den Haag í Hollandi.

Crystal Thomas er bandarísk og leikur sem framherji. Hún lék níu af 22 leikjum Medkila á síðasta tímabili og skoraði eitt mark en liðið varð langneðst og féll.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert