Ásgeir framlengdi við KA

Ásgeir Sigurgeirsson í leik á KR-vellinum í fyrra.
Ásgeir Sigurgeirsson í leik á KR-vellinum í fyrra. mbl.is/Árni Sæberg

KA-menn hafa tryggt sér krafta Ásgeirs Sigurgeirssonar í knattspyrnunni næstu tvö árin eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá félaginu. 

Ásgeir skoraði 5 mörk fyrir liðið í Pepsí-deildinni í fyrra og 8 mörk árið þar áður í 1. deildinni. Hann er 22 ára gamall og var um tíma erlendis hjá Stabæk í Noregi. 

Ásgeir á að baki 5 leiki fyrir U-19 ára landsliðið og 7 leiki fyrir U-17 ára liðið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert