Völsungur skoraði sjö á móti Tindastóli

Bjarki Baldvinsson skoraði tvö mörk fyrir Völsung í kvöld. Hér …
Bjarki Baldvinsson skoraði tvö mörk fyrir Völsung í kvöld. Hér er hann með boltann í leiknum gegn Tindastóli. Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson

2. deildarlið Völsungs mætir Fram úr 1. deild í 32 liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta. Þetta varð ljóst eftir 7:1-sigur liðsins á Tindastóli á heimavelli sínum á Húsavík í kvöld. 

1. deildarlið ÍR tryggði sér heimaleik á móti FH með 1:0-sigri á Augnabliki í Breiðholtinu. Jón Gísli Ström skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu á 27. mínútu. Kári Ársælsson, leikmaður Augnabliks, og Aron Skúli Brynjarsson úr ÍR fengu báðir rautt spjald á lokamínútunni. 

Þór fær svo heimsókn frá HK í 1. deildarslag en Þórsarar höfðu betur gegn grönnum sínum í Dalvík/Reyni í kvöld, 3:1. Álvaro Montejo, Aron Kristinn Lárusson og Jakob Snær Árnason skoruðu mörk Þórsara, en Kristinn Þór Björnsson lagaði stöðuna fyrir Dalvík/Reyni undir lokin. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert