Rúnar stýrir Stjörnunni ekki í kvöld

Rúnar Páll Sigmundsson.
Rúnar Páll Sigmundsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, mun ekki vera á hliðarlínunni í kvöld þegar liðið tekur á móti Fylki í Pepsi-deild karla í knattspyrnu.

Rúnar Páll er staddur í Svíþjóð þar sem hann er að taka UEFA Pro-þjálfaragráðu. Í hans fjarveru munu þeir Jón Þór Hauksson og Veigar Páll Gunnarsson stýra liðinu í kvöld.

Fylgst er með gangi mála í leiknum í beinni textalýsingu á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert