Stórleikur Þórs/KA og Stjörnunnar í bikarnum

ÍBV er ríkjandi bikarmeistari.
ÍBV er ríkjandi bikarmeistari. mbl.is/Árni Sæberg

Nú í hádeginu var dregið til 16-liða úrslitanna í Mjólkurbikarkeppni kvenna í knattspyrnu í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal.

Ríkjandi bikarmeistarar ÍBV sækja Keflavík heim, sem leikur í Inkasso-deildinni, og Íslandsmeistarar Þórs/KA fá Stjörnuna í heimsókn.

Drátturinn varð þessi:

KR - Breiðablik

Afturelding/Fram - ÍR

Valur - FH

Fylkir - HK/Víkingur

Þór/KA - Stjarnan

Selfoss - Fjölnir

Keflavík - ÍBV

Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir - Grindavík

Leikirnir fara fram 1.-3. júní.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert