Haukur Páll Sigurðsson, fyrirliði Íslandsmeistara Vals í knattspyrnu, þurfti að fara af leikvelli í Grindavík í gær vegna meiðsla. Haukur fékk tvívegis höfuðhögg.
Í fyrra skiptið fékk hann boltann í höfuðið í upphitun og í síðara skiptið lenti hann í samstuði í vítateig Grindavíkur. Grindavík og Valur áttust við í 5. umferð Pepsi-deildarinnar en úrslitin lágu ekki fyrir þegar blaðið fór í prentun né hversu alvarleg meiðsli Hauks kynnu að vera.