Kári upp að hlið Þróttar

Jón Vilhelm Ákason var á skotskónum.
Jón Vilhelm Ákason var á skotskónum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kári vann góðan 2:0-sigur á Þrótti úr Vogum í 4. umferð 2. deildar karla í fótbolta á Vogabæjarvelli í kvöld. Með sigrinum fór Kári upp í níu stig og upp að hlið Þróttar, sem var með fullt hús stiga fyrir leik kvöldsins.

Þessi tvö lið komu saman upp úr 3. deildinni síðasta haust og ætla sér greinilega bæði að vera með í slagnum um 1. deildarsæti.

Jón Vilhelm Ákason kom Kára yfir á 16. mínútu og var það eina mark fyrri hálfleiks. Guðlaugur Þór Brandsson fékk gullið tækifæri til að bæta við marki en hann brenndi af á vítapunktinum á 65. mínútu. 

Það kom ekki að sök því Ragnar Már Lárusson skoraði annað mark Kára í uppbótartíma og tryggði góðan sigur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert