Selfoss tók á móti Magna í 4. umferð Inkasso-deildar karla í knattspyrnu í dag en leiknum lauk með 2:1 sigri heimamanna.
Gilles Mbang Ondo kom Selfyssingum yfir á 53. mínútu en Sigurður Marínó Kristjánsson jafnaði metin fyrir gestina á 85. mínútu. Það var svo Ingi Rafn Ingibergsson sem skoraði sigurmark leiksins á 89. mínútu og fyrsti sigur heimamanna í sumar staðreynd.
Selfyssingar eru í níunda sæti deildarinnar með 4 stig eftir fyrstu fjórar umferðirnar en Magni er á botninum með 3 stig.
Markaskorarar af fótbolti.net.