Haukar í annað sætið eftir sigur á ÍR

Haukastúlkur eru komnar í annað sæti Inkass-deildar kvenna.
Haukastúlkur eru komnar í annað sæti Inkass-deildar kvenna. mbl.is/Ófeigur

Hildur Karítas Gunnarsdóttir reyndist hetja Hauka þegar liðið tók á móti ÍR í sjöttu umferð Inkasso-deildar kvenna í knattspyrnu í kvöld. Hún skoraði eina mark leiksins á 25. mínútu í 1:0 sigri Hauka. Heimakonur eru komnar í annað sæti deildarinnar með 10 stig, jafn mörg stig og Keflavík og Þróttur Reykjavík sem raða sér í efstu sæti deildarinnar.

Keflavík hefur hins vegar spilað fjóra leiki í deildinni í sumar, líkt og Fylkir sem er í fjórða sætinu með 9 stig. Haukar og Þróttur Reykjavík hafa bæði spilað fimm leiki. ÍR er hins vegar í sjötta sæti deildarinnar með 7 stig en liðið hefur spilað sex leiki í deildinni sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert