Maður fagnar sigri á svona liði

Ólafur Jóhannesson, þjálfari Valsmanna á hliðarlínunni í kvöld.
Ólafur Jóhannesson, þjálfari Valsmanna á hliðarlínunni í kvöld. mbl.is/Valli

„Við spiluðum reyndar mjög vel á móti mjög góðu liði og ég er ánægður með sigurinn því þessi lið verða í baráttunni á toppnum, maður fagnar sigri á svoleiðis liði,“ sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, eftir 2:1 sigur á FH að Hlíðarenda í kvöld þegar leikið var í 10. umferð Pepsi-deildarinnar.

„Við hefðum jafnvel með „ef og hefði“ átt að skora meira. FH-ingar komu fram í sókninni í lokin til þess að freista þess að jafna og þá fengum við mörg góð tækifæri til að bæta við en að öðru leyti var þetta bara jafn leikur þar sem tvö góð lið börðust.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert