Bandarískur varnarmaður til Grindavíkur

Kvennalið Grindavíkur hefur bætt við sig leikmanni.
Kvennalið Grindavíkur hefur bætt við sig leikmanni. Sigfús

Knattspyrnudeild Grindavíkur hefur samið við bandarísku knattspyrnukonuna Madeline Keane og er hún kominn með leikheimild hjá liðinu.

Keane er 25 ára gömul og leikur sem varnarmaður en hún spilaði fyrir Tindastól í 1. deildinni í fyrra. Lék þar fimm leiki. Síðasta haust færði hún sig svo yfir til Ítalíu og hefur þar leikið með liðinu Catania Calcio sem leikur í B-deildinni.

Bras­il­íska fót­bolta­kon­an Ríl­any da Silva yfirgaf Grindavík á dögunum til að ganga til liðs við Atlético Madríd á Spáni en þær Keane spila í sömu stöðu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert