Knattspyrnukonan Sigrún Ella Einarsdóttir er komin með leikheimild hjá Stjörnunni en hún kemur til félagsins frá Fiorentina þar sem hún hefur verið síðan í ágúst á síðasta ári.
Sigrún varð ítalskur bikarmeistari með Fiorentina og hafnaði í þriðja sæti efstu deildar þar í landi. Hún spilaði 14 af 22 leikjum Fiorentina í ítölsku deildinni, en var mikið á varamannabekknum og hóf sex leikjanna í byrjunarliðinu.
Sigrún Ella hefur leikið 92 leiki í efstu deild Íslands og skorað í þeim 20 mörk. Hún á tvo A-landsleiki að baki. Hún lék í fjögur ár með Stjörnunni áður en hún fór til Ítalíu og þar áður lék hún með FH.