Fyrsti sigurleikur KR á heimavelli

Eyjakonan Sóley Guðmundsdóttir í baráttu við Mia Gunter í Vesturbænum …
Eyjakonan Sóley Guðmundsdóttir í baráttu við Mia Gunter í Vesturbænum í kvöld. mbl.is/Arnþór

KR og ÍBV áttust við í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu á Alvogen-vellinum í kvöld. Leikurinn endaði með 3:2 sigri KR.

ÍBV fór betur af stað og á 23. mínútu skoraði Sigríður Lára Garðarsdóttir með skalla. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir tvöfaldaði forystuna á 47. mínútu með skoti af stuttu færi.

Shea Connors minnkaði muninn á 51. mínútu með góðu skoti með vinstri fæti. Hún jafnaði síðan metin á 55. mínútu eftir fyrirgjöf frá Bettsy Hassett.

Það var síðan Katrín Ómarsdóttir sem skoraði sigurmarkið á 73. mínútu eftir aðra fyrirgjöf frá Bettsy Hassett.

Lokatölur 3:2 fyrir KR sem vann sinn fyrsta sigurleik á heimavelli í sumar. KR er í 9.-10. sæti deildarinnar með sex stig á meðan ÍBV siglir lygnan sjó í 5. sæti með ellefu stig.

KR 3:2 ÍBV opna loka
90. mín. Leik lokið
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert