Tveggja marka sigur á Lettum

Finnur Tómas Pálmason og Teitur Magnússon sækja að leikmanni Letta.
Finnur Tómas Pálmason og Teitur Magnússon sækja að leikmanni Letta. Ljósmynd/KSÍ

U18 ára landslið karla í fótbolta vann 2:0-sigur á Lettum í vináttuleik ytra í gær. Karl Friðleifur Gunnarsson skoraði fyrra markið og Þórður Gunnar Hafþórsson gerði síðara markið.

Bæði mörkin komu í fyrri hálfleik og voru lögð upp af Andra Lucasi Guðjohnsen. Liðin mætast öðru sinni á laugardag kl. 9. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert